Í skýrslu starfshóps innviðaráðuneytisins er lagt til að skýr mörk verði sett varðandi ölvun ökumanna rafhlaupahjóla, aldurstakmörk ökumanna verði þrettán ár og að bannað verði að breyta hámarkshraða rahlaupahjólanna. Þá er lagt til að umferðarfræðsla verði með skýrum hætti hluti aðalnámskrár grunnskóla.
Þetta kemur fram í skýrslu starfsfhóps innviðaráðuneytisins um smáfarartæki, og geta því fleiri tæki fallið þar undir en rafhlaupahjól. Eru þar kynntar sex tillögur til úrbóta sem er ætlað að auka öryggi notenda og annarra vegfarenda og styðja jafnframt við notkun fjölbreyttra umhverfisvænna fararskjóta.
Skýrslan verður höfð til hliðsjónar við undirbúning frumvarps til breytinga á umferðarlögum sem lagt verður fram á Alþingi næsta vetur.
„Smáfarartækjum, aðallega rafhlaupahjólum, hefur fjölgað ört á síðustu árum. Í skýrslunni segir að þægindi og aukin vitund um umhverfisáhrif umferðar stuðli að þessum vexti en ávinningur samfélagsins felist m.a. í minni umferðartöfum í þéttbýli og minni mengun frá umferð“, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Athugun á slysagögnum leiddi í ljós að slys eru algeng. Árið 2021 var hlutfall þeirra sem voru á rafhlaupahjóli meðal alvarlega slasaðra orðið 17 prósent en akstur á rafhlaupahjólum er innan við eitt prósent af allri umferð.
Þá kom í ljós að 40 prósent þeirra sem slasast alvarlega á rafhlaupahjóli voru á ferð á milli klukkan ellefu og fjögur á föstudags- og laugardagskvöldum. Margir þeirra reynast einnig ölvaðir við komu á slysadeild Landsspítala.
Í könnun um aksturshegðun kom í ljós að 40 prósent ungra vegfarenda (18-24 ára) hafa ekið tækjum undir áhrifum áfengis. Loks er algengt að börn undir 10 ára aldri komi á slysadeild eftir óhöpp við akstur rafhlaupahjóla.
„Við þurfum að hafa hraðar hendur við að tryggja umferðaröryggi allra þeirra sem kjósa að nota smáfarartæki. Tillögur starfshópsins eru því mikilvægt innlegg í endurskoðun umferðarlaga með tilliti til þessa nýja ferðamáta,“ er haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni, innviðaráðherra.