Íslenskir stuðningsmenn eru orðnir ansi fjölmennir í Rotherham á Englandi en þar mætast Ísland og Frakkland síðar í kvöld í lokaleik sínum í D-riðli Evrópumóts kvenna í knattspyrnu á New York-vellinum.
Þrátt fyrir mikinn hita í Rotherham í dag létu Íslendingar sig ekki vanta til þess að hita upp fyrir leikinn á stuðningsmannasvæði í miðbæ borgarinnar.
Plötusnúðurinn Dóra Júlía Agnarsdóttir sá um að hita mannskapinn upp, líkt og hún gerði gegn bæði Belgíu og Ítalíu, en í dag voru þær Sólrún Mjöll Kjartansdóttir og Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir með henni að trylla lýðinn.
Hitinn fór rétt yfir 37° stig þegar mest var en það aftraði ekki íslenskum stuðningsmönnum frá því að syngja og tralla á torginu.
Eggert Jóhannesson ljósmyndari Morgunblaðsins var á svæðinu og fangaði stemninguna í Rotherham.