Andrea Sigurðardóttir nýr formaður Hvatar

Andrea er nýr formaður Hvatar.
Andrea er nýr formaður Hvatar.

Andrea Sig­urðardótt­ir er nýr formaður Hvat­ar, fé­lags sjálf­stæðis­k­venna í Reykja­vík.

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is greiddu alls 136 fé­lags­kon­ur at­kvæði en Andrea vann með 27 at­kvæða mun. Einn seðill í for­manns­kjöri var auður.

Andrea Sig­urðardótt­ir starfaði áður sem blaðamaður á Viðskipta­blaðinu en tók ný­verið við starfi hjá Mar­el sem verk­efna­stjóri á sam­skipta­sviði. Hún er viðskipta­fræðing­ur að mennt og með meist­ara­gráðu í fjár­mál­um fyr­ir­tækja.

Tólf gáfu kost á sér til stjórn­ar en með Andr­eu í nýrri stjórn eru:

  • Rakel Lúðvíks­dótt­ir
  • Birta Kar­en Tryggva­dótt­ir
  • Ágústa Guðmunds­dótt­ir
  • Hlíf Sturlu­dótt­ir
  • Bryn­dís Ýr Pét­urs­dótt­ir
  • Eva Dögg Sig­ur­geirs­dótt­ir
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert