Jörð fraus í Reykjavík í nótt, en hiti við jörðu mældist lægst -3,4 gráður.
Sáust merki þess skýrt í Grafarvogi, líkt og myndirnar gefa til kynna.
Lofthiti náði þó ekki frostmerki, en hann er mældur í tveggja metra hæð. Þetta staðfestir Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Á Þingvöllum var kaldast í nótt ef litið er til láglendisins, en þar náði lofthiti niður fyrir -4,3 gráður. Næst kaldast var á Sandskeiði og við Torfur.
Einnig var talsvert um næturfrost á hálendinu, en kaldast við Möðrudali, Veiðivatnajökul og Dyngjujökul.