Fagleg rök mæla með Sauðárkróki

Flugvöllurinn á Sauðárkróki erá Borgarsandi, rétt sunnan við bæinn, þangað …
Flugvöllurinn á Sauðárkróki erá Borgarsandi, rétt sunnan við bæinn, þangað sem horft er á þessari mynd sem tekin er af Nöfunum. mbl.is/Sigurður Bogi

„Auðvitað á faglegt mat á að ráða því hvar varavöllur millilandaflugs Íslendinga skuli vera. Í því efni mælir margt með Sauðárkróki,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í Skagafirði. Tilefnið er viðtal við Hjörleif Jóhannesson, flugstjóra hjá Icelandair, í Morgunblaðinu sl. laugardag. Þar lýsir hann þeirri skoðun sinni að styrkja eigi Alexandersflugvöll á Sauðárkróki í sessi. Eldgos á Reykjanesskaga ráði því að hugmyndir um flugvallarbyggingu í Hvassahrauni séu að renna út í sandinn. Nýrra kosta þurfi að leita.

Á Sauðárkróki er um tveggja kílómetra löng flugbraut, sem styrkja þarf og útbúa flughlöð ef þotur eiga að geta farið þar um. 

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert