„Staðan er þannig hjá okkur að nú verður félags- og vinnumarkaðsráðuneytið að bera ábyrgð á þessari þjónustu og því vísum við ábyrgðinni þangað,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, um ályktun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að ábyrgð á þjónustu við flóttafólk hjá sveitarfélaginu verði vísað til ríkisvaldsins.
„Innviðir okkar eru sprungnir gagnvart þessu og við viljum gera vel við þá sem við erum með samning um þjónustu. Við komumst ekki lengra,“ segir Rósa.
Nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.