Tvær íslenskar konur voru fluttar á spítala í Frakklandi í gær vegna meiðsla sem þær hlutu er loftbelgur sem þær voru um borð í hvolfdi. Ellefu Íslendingar voru í loftbelgnum.
Franski miðillinn France Bleu greinir frá.
Í frétt Ríkisútvarpsins kemur fram að konurnar tvær séu nú báðar á hækjum. Ein þeirra hlaut hnébrot en hin er aum í báðum fótum.
Atvikið átti sér stað nærri frönsku borginni Tours um klukkan hálfníu að morgni til.
Freysteinn Jónsson fyrrverandi flugstjóri er einn Íslendinganna sem var um borð í loftbelgnum en eiginkona hans hnébrotnaði. Hann segir í samtali við RÚV að flugið hafi gengið vel í fyrstu en síðan hafi belgurinn hreinlega brotlent.