Coolbet telur Bjarna líklegri

Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson munu takast á um …
Guðlaugur Þór Þórðarson og Bjarni Benediktsson munu takast á um formannsembætti Sjálfstæðisflokkins á landsfundi sem fer fram um næstu helgi. Samsett mynd

Stuðlarn­ir hjá veðbank­an­um Cool­bet í formannsslag Sjálfstæðisflokksins eru Bjarna Benediktssyni í hag.

Bjarni mun etja kappi við Guðlaug Þórð Þórðarson en landsfundur flokksins hefst á föstudag og lýkur á sunnudag er úrslit kosninganna verða ljós. 

Rétt fyrir klukkan níu í kvöld hafði Bjarni stuðulinn 1.60 á meðan stuðull Guðlaugs Þórs var 2.20 og því telur veðbankinn meiri líkur á að Bjarni haldi formannssætinu. 

Stuðlarnir rétt fyrir klukkan níu í kvöld.
Stuðlarnir rétt fyrir klukkan níu í kvöld. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert