Norðurlöndin beiti sér fyrir kjarnorkuafvopnun

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var viðstödd setningu Norðurlandaráðsþings í Helsinki í …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var viðstödd setningu Norðurlandaráðsþings í Helsinki í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í ávarpi sínu í leiðtogaumræðunum á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í dag að innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og það ástand sem það hefur skapað í Evrópu hafi dregið fram mikilvægi samvinnu og samstöðu Norðurlandanna. Hún ræddi einnig mikilvægi þess að Norðurlöndin beiti sér fyrir kjarnorkuafvopnun á alþjóðavettvangi.

„Lýðræði, virðing fyrir mannréttindum og öflugt réttarríki eru þær grunnstoðir sem við byggjum samfélög okkar á og gera okkur betur kleift að mæta ógnum og tryggja velsæld fyrir íbúa. En lýðræðið á víða undir högg að sækja og alræðisöfl virðast vera að eflast,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í ávarpi sínu.

Umræðuefnið leiðtogaumræðnanna var framtíð norræns samstarfs og hlutverk Norðurlanda í umheiminum. Þingið sem er hið 74. í röðinni stendur fram á fimmtudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Sanna Marin, forsætisráðherra Finna, Katrín Jakobsdóttir, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra …
Sanna Marin, forsætisráðherra Finna, Katrín Jakobsdóttir, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svía. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Hitti nýjan forsætisráðherra Svía

Í tilkynningunni kemur jafnframt fam að í dag hafi norrænu forsætisráðherrarnir fundað og meðal annars rætt loftslagsmál, græn umskipti og stöðuna á vinnu við framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar til 2030 um Norðurlönd sem sjálfbærasta og samþættasta svæði heims.

Þá átti forsætisráðherra tvíhliða fund með Ulf Kristersson, nýjum forsætisráðherra Svíþjóðar. Þar ræddu þau sterk tengsl og árangursríkt samstarf landanna og mikilvægi norrænnar samvinnu. Forsætisráðherrarnir ræddu einnig stöðuna í öryggis- og varnarmálum í Evrópu og aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu.

Katrín Jakobsdóttir og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, ræddu saman.
Katrín Jakobsdóttir og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, ræddu saman. Ljósmynd/Stjórnarráðið
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert