Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, segist mjög ósattur við þá ákvörðun formanns stjórnar Sjálfstæðisfélags Kópavogs og formanns fulltrúaráðsins í Kópavogi að endanlegur listi landsfundarfulltrúa yrði ekki borinn fyrir stjórnir allra félaga Sjálfstæðisflokksins áður en fulltrúarnir voru sendir til Valhallar til skráningar.
Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, sagði í færslu á Facebook fyrr í dag að vinnubrögð sem viðhöfð hafi verið innan flokksins hafi gengið fram af sér. Kjörbréfanefnd vísaði þessum fullyrðingum formannsins síðar á bug.
„Öllum félögum Sjálfstæðisflokksins er skylt að halda fundi með félagsmönnum sínum til þess að kjósa fulltrúa á landsfund. Þetta er framkvæmdin um allt land. Í Kópavogi kusu formaður stjórnar Sjálfstæðisfélags Kópavogs og formaður fulltrúaráðsins í Kópavogi að fara sína eigin leið í fullu ósamræmi við skipulagsreglur flokksins – lög flokksins,“ segir í færslu Andra Steins á Facebook.
Hann segist mjög ósáttur við þá ákvörðun, „ og ekki legið á minni skoðun um að það eigi ekki að vera á hendi örfárra stjórnarmanna í félögum að ráðstafa tæplega 130 fulltrúum á landsfundi.“
„Ég geri alvarlegar athugasemdir við þessi vinnubrögð fulltrúaráðsins og Sjálfstæðisfélags Kópavogs og kalla eftir því að skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins séu virtar í Kópavogi líkt og annars staðar á landinu. “