Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að lágpunkti hafi verið náð hjá Ríkisútvarpinu þegar svipmyndir af „ævintýrum Adolfs Hitlers“ voru sýndar í þættinum Vikan með Gísla Marteini á föstudagskvöld.
Í Facebook-færslu vísaði Guðrún í færslu Andra Steins Hilmarssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, í gær þar sem hann sagði að nýjum lágpunkti hafi verið náð „þegar útlendingastefna RÚV er orðin að meginþema í jólabarnaefni sem er framleitt“.
Guðrún segir að lágpunkturinn hafi verið „í þættinum síðasta föstudagskvöld þegar Gísli/RÚV taldi nokkrar laufléttar svipmyndir af „ævintýrum“ Adolfs Hitlers myndu koma íslensku þjóðinni í jólaskap“.
Vitnar hún síðan orðrétt í orð Gísla Marteins.
„Ég hef búið í Þýskalandi. Svona myndi engin láta frá sér og allra síst á ríkisreknum fjölmiðli!“