„Ummæli borgarstjóra eru auðvitað dæmigert lýðskrum,“ segir Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í samtali við mbl.is um ummæli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra fyrr í dag þar sem hann sagði breytingartillögur Sjálfstæðisflokksins vera sýndarmennska.
Flokkurinn leggur til breytingar á fjárhagsáætlun fyrir 2023 sem spari að minnsta kosti 7.235 milljónir króna.
Hún segir að niðurskurðurinn beinist ekki að framlínustörfum né grunnþjónustu.
„Sýndarmennskan og lýðskrumið felst í orðum borgarstjóra að halda þessu í sífellu fram, vitandi betur,“ segir Hildur og á þar við orð borgarstjóra um að Sjálfstæðisflokkurinn telji að hægt sé að fækka starfsfólki borgarinnar um 5%, án þess að það bitni á þjónustu við fatlað fólk, leikskólabörn og grunnskólabörn.
„Það er bara algjört óraunsæi, algjört óraunsæi,“ sagði Dagur í samtali við mbl.is fyrr í dag.
Hildur segir að aðalatriðið sé að skera niður í yfirbyggingunni. „Þar eru rúm tækifæri og 5% er ekki einu sinni ríflegt, í því tilliti.“
„Staðreyndin er sú að síðastliðin fimm ár hefur borgarstarfsmönnum fjölgað um 25% meðan íbúum hefur aðeins fjölgað um 10%. Samhliða hefur Reykjavíkurborg leitt launahækkanir í landinu síðustu ár. Þetta er óæskileg og ósjálfbær þróun. Tillögur okkar miða að því að verja framlínustörf og grunnþjónustu borgarinnar, það er algjörlega skýrt. Tækifærin liggja í yfirbyggingunni.“
Hún bendir á gagnrýni leikskólastjórnenda sem birtist fyrir helgi.
„Þar kom fram að kostnaður við yfirbyggingu skóla- og frístundamála samsvari 10% af framlögum til leikskólamála. Þannig sé 1,5 milljarði varið í 72 störf á fagsviði skólamála, til samanburðar við 2000 störf á leikskólunum. Þessi einfalda tölfræði gefur til kynna að meðallaun í yfirbyggingu borgarinnar séu umtæplega tvöföld meðallaun þeirra sem sinna grunnþjónustu leikskólanna, gróft reiknað. Þetta er skekkjan sem við erum að benda á, þarna liggja tækifærin.“
Spurð hvort hún geri ráð fyrir að breytingartillögurnar verði samþykktar segist Hildur óviss.
„Borgarstjóri setti nú tóninn í upphafi fundar og virtist fremur neikvæður í garð allra okkar tillagna, nema kannski þeirrar að selja sumarbústað borgarstjórnar, en það er nú minnsta tillagan.“
Hún segir að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi legið yfir mörgum tillögum meirihlutans síðustu daga.
„Við munum samþykkja einhverjar en hafna öðrum. Við samþykkjum aðallega þær sem snúa að hagræðingu í rekstrinum. Við sjáum því miður ekki tillögur sem taka á yfirbyggingunni sem slíkri, en við munum hafna tillögum sem snúa að því að skera niður í grunnþjónustu,“ segir Hildur og nefnir tillögur um að skera niður í matarkostnaði leikskólabarna, stytta opnunartíma félagsmiðstöðva og loka starfsemi Sigluness.
„Það er verið að skera niður talsvert í þjónustu við börn og því getum við ekki samsinnt þegar tækifærin eru svo mörg til að minnka yfirbygginguna.“