Styrkur köfnunarefnisdíoíðs og svifryks mældist hár í borginni í dag og mældist klukkutímagildi köfnunarefnisdíoíðs við Grensásveg 196,3 míkrógrömm á rúmmetra kl. 14 í dag. Á sama tíma var klukkutímagildi svifryks 105 míkrógrömm á rúmmetra. Þetta segir í tilkynningu frá borginni.
Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra en leyfilegt klukkustundargildi er 200 míkrógrömm á rúmmetra. Sólahringsheilsuverndarmörk fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra, tæplega helmingurinn af því sem mældist kl. 14.
„Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er að jafnaði mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung,“ segir í tilkynningunni. Stendur svifrykið af malbiksögnum, sóti, jarðvegi, salti og sliti úr hjólbörðum og bílhlutum, sem þyrlast upp þegar þurrt er.
Þá er gert ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í kvöld og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg auk þess sem hætta er á að gildi svifryks gætu orðið mjög há.
Gert er ráð fyrir svipuðu veðri á morgun og því mögulegt að ástandið verði viðvarandi.
„Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna.
Köfnunarefnisdíoxíð og brennisteinsvetni geta valdið ertingu í lungum og öndurvegi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til,“ segir í tilkynningunni.
Hægt er að fylgjast með styrk mengandi efna í rauntíma hér.