Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Landsvirkjun, RARIK og Orkubú Vestfjarða hafa náð samningum um kaup ríkisins á 93,22% eignarhlut fyrirtækjanna í Landsneti hf.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
Samkvæmt kaupsamningum greiðir ríkið bókfært verð fyrir eignarhlut þeirra sem nemur um 439 milljónum Bandaríkjadala, eða um 63 milljörðum króna.
Landsnet var stofnað með lögum 2004 og tók til starfa 2005. Fyrirtækið starfar samkvæmt sérleyfi en hlutverk félagsins er flutningur raforku og stjórnun raforkukerfisins.
Eigendur voru í byrjun Landsvirkjun, Rarik og Orkubú Vestfjarða. Árið 2007 bættist Orkuveita Reykjavíkur í eigendahópinn og hefur eignarhald verið óbreytt síðan.
„Í Orkustefnu til 2050 sem birt var haustið 2020 kemur m.a. fram að hlutlaust eignarhald sé grundvöllur gagnsæis og jafnræðis á raforkumarkaði og því mikilvægt að ljúka eigendaaðskilnaði flutningsfyrirtækisins þannig að það sé í beinni opinberri eigu. Kaup ríkisins grundvallast á þessu sjónarmiði og eru í samræmi við það sem kveðið er á um með nýlegum breytingum á raforkulögum og lögum um stofnun Landsnets,“ segir í tilkyningunni.