Urður Egilsdóttir
„Eins og komið er hefur þetta farið á besta veg, en það er spurning hvort við séum að hinkra eftir veðrinu,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Suðurlandi, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu lýsti yfir óvissustigi Almannavarna í gærkvöldi vegna veðurs.
Hjördís segir að von sé á snjókomu áfram, sérstaklega á Suðurlandinu.
„Þannig að við erum ekki sloppin,“ segir hún og bætir við að óvissustig verði áfram í gildi þar sem það nær yfir það stórt svæði.
„Þó að við séum að sleppa betur hér [á höfuðborgarsvæðinu] þá er þetta ekkert búið.“
Samhæfingarmiðstöð almannavarna var virkjuð klukkan þrjú í nótt og segir Hjördís að hún starfi allavega til hádegis.
Hún segir að grannt verði fylgst með og staðan metin eftir þörfum.