Eftir langan frostakafla stefnir í hlýnandi veður á morgun og getur varahugavert ástand skapast samhliða asahlákunni. Starfsfólk Reykjavíkurborgar hefur unnið síðustu daga að því að hreinsa í kringum niðurföll á þekktum lágpunktum til að lagnakerfið geti betur tekið á móti vatninu.
Erfitt hefur reynst að komast að niðurföllum og hefur í sumum tilfellum þurft að saga í gegnum klakann og beita ýmsum verkfærum. Einnig hjálpar til að búið er að flytja mikið magn af snjó í burtu úr þrengri götum eins og til að mynda í vesturhluta borgarinnar. Líka hefur verið unnið að því að sanda gönguleiðir síðustu daga. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Hverfastöðvar Reykjavíkurborgar verða með starfsfólk á vakt fram eftir kvöldi á föstudag og á laugardeginum ef þörf verður á. Helstu verkefni þeirra verða að takast á við og koma í veg fyrir vatnssöfnun á götum.
Fólk getur sent inn ábendingar um t.d. vatnssöfnun á götum á ábendingavef Reykjavíkurborgar.