„Ég er mjög ánægð með fundinn og heimsóknina til Berlínar. Þýskaland er mikilvægur bandamaður Íslands, bæði pólitískt og efnahagslega en ekki síður menningarlega. Ríkin hafa átt í góðu samstarfi og við deilum vilja til að útvíkka samstarfið enn frekar,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á sameiginlegum blaðamannafundi eftir tvíhliða fund hennar með Olaf Scholz, kanslara Þýskalands í Berlín í dag.
Leiðtogarnir voru spurðir út í stríðið í Úkraínu en Katrín sagði ríkin tvö staðföst og sameinuð í stuðningi við Úkraínu og að þau fordæmi árásir Rússa á óbreytta borgara og borgaralega innviði. Þá sagði hún samstöðu Evrópu og bandamanna okkar hinum megin Atlantshafsins vera mikilvægustu afleiðingu þessa hræðilega stríðs.
Katrín sagðist myndu taka hlýlega á móti kanslaranum á leiðtogafundi Evrópuráðsins í maí á Íslandi. Hún sagði ráðið mikilvæg stofnun í Evrópu og gildi hennar mikilvæg en Ísland fer með formennsku í Evrópuráðinu síðan í nóvember síðastliðinn.
Hún sagði Ísland ekki hafa áform um að ganga í Evrópusambandið á næstu árum og það væri ekki á stefnuskrá hennar ríkisstjórnar en að Ísland liti á Evrópu og Evrópuríkin sem sína nánustu vini og bandamenn og að Íslendingar njóti samstarfs við Evrópu innan evrópska efnahagssamningsins.
Í morgun heimsótti forsætisráðherra höfuðstöðvar íslenska leikjafyrirtækisins Klang Games og þá tók hún þátt í hádegisviðburði á vegum hugveitunnar Körber Stiftung þar sem fjallað var um formennsku Íslands í Evrópuráðinu, mannréttindi, lýðræði, öryggismál í Evrópu og stríðið í Úkraínu.