Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ber fullt traust til ríkissáttasemjarans Aðalsteins Leifssonar en rætt var við Katrínu í kvöldfréttum RÚV.
Katrín var spurð að því hvort traust hennar til ríkissáttasemjara væri óraskað og sagði hún svo vera. Rætt var við Katrínu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara í viðræðum Samtaka atvinnulífsisn og Eflingar.
„Nú hefur ég skoðað þetta mál eftir minni bestu getu, og sé ekki betur en að sáttasemjari sé innan þeirra heimilda sem er að finna í lögum. Ef aðilar eru ósammála því mati þá geta þau auðvitað leitað til dómstóla,“ sagði Katrín meðal annars í viðtalinu.
Spurð um hvort ríkisstjórnin muni beita sér vegna þeirrar stöðu sem uppi er í viðræðunum sagði hún það ekki hafa verið rætt.