Dregið hefur verið úr notkun sands á stofn- og hjólastígum Reykjavíkurborgar undanfarin ár. Það sem af er þessum vetri hefur verið sandað fjórum sinnum á stígum sem flokkaðir eru í þjónustuflokki 3 og til þess hafa verið notuð um 45 tonn af sandi. Það er mun minna en á sama tíma í fyrra.
Þetta kemur fram í svari skrifstofustjóra borgarlandsins við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lagt var fram í umhverfis- og skipulagsráði í gær.
Við sama tækifæri var birt svar við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um saltdreifingu borgarinnar. Í svarinu var birt tafla yfir saltnotkun frá árinu 1977 og fram á síðasta vetur. Samkvæmt töflunni voru notuð 8.829 tonn af salti á götur Reykjavíkur veturinn 2021-2022 sem var næstum því tvöfalt meira en veturinn þar á undan.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.