Efling boðar til mótmælagöngu á morgun gegn fyrirhuguðu „verkbanni SA og dugleysi stjórnvalda.“ Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Eflingar.
Eru félagar Eflingar sem eru í verkfalli boðaðir á fund í Iðnó sem hefst á hádegi, en í kjölfarið verður svo farið í mótmælagöngu klukkan 13.
„Þetta verða friðsamleg mótmæli þar sem við komum með skilti, hrópum slagorð og flytjum ræður til að til að mótmæla verkbanni Samtaka atvinnulífsins og senda skilaboð til ráðastéttar Íslands um kröfur okkar,“ segir í tilkynningunni.