Geir Finnsson forseti LUF, Landssambands ungmennafélaga, og fulltrúi Uppreisnar - ungliðarhreyfingar Viðreisnar var endurkjörinn forseti sambandsins á þingi þess, en hann hafði betur gegn S. Magga Snorrasyni, fulltrúa Sambands framhaldsskólanema. Eva Brá Önnudóttir, fulltrúi Ungra norrænna, var kjörin varaforseti sambandsins. Þingið var haldið á Háskólatorgi um helgina.
Á þinginu hlutu einnig tvö ungmennafélög fulla aðild að sambandinu, annars vegar Q - félag hinsegin stúdenta á Íslandi og hins vegar Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS). Q - félag hinsegin stúdenta eru hagsmunasamtök innan Háskólans sem beita sér fyrir réttindabaráttu hinsegin fólks innan og utan veggja Háskólans og stuðla að aukinni fræðslu um málefnið. Samband ungra sjálfstæðismanna er bandalag svæðisbundinna félaga ungra sjálfstæðismanna um land allt.
Aðildarfélög sambandsins eru nú 41 talsins og með inngöngu SUS eru nú allar starfandi ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka á Íslandi innan vébanda Landssambands ungmennafélaga. Haft er eftir Sólveigu Ástudóttur Daðadóttur forseta Q – félagsins að samþykkt aðildarumsókna félagana marki „viss tímamót fyrir bæði félög”.
Nýkjörna stjórn skipa:
Meðstjórnendur
Varafulltrúar