Fótboltaáhugamaður frá Ástralíu rambaði fyrir tilviljun fram á leik Dalvíkur/Reynis og Hattar/Hugins í Lengjubikar karla í dag.
Maðurinn er á ferð um Norðurland og var að keyra framhjá Dalvík er hann sá að leikurinn var í gangi.
Yfirleitt ferðast hann um Ástralíu og mætir á fótboltaleiki fjölda liða í ýmsum deildum, og sýnir frá. Nú er hann aftur á móti á ferðalagi en hitti óvænt á leik þessara framandi liða.
Leiknum lauk með 3:2 sigri Hattar/Hugins. Svo skemmtilega vildi til að er Ástralinn tók myndskeið af útsýninu skoraði Höttur/Huginn sitt þriðja mark.
Hér fyrir neðan má sjá myndskeið af markinu, sem og útsýninu:
So whilst filming the backdrop of the game, I also managed to accidentally capture the goal. 3-1 to the away team pic.twitter.com/3KbV5lQoVS
— Aussie Groundhopper (@OzGroundHop) March 25, 2023