„Grípa þarf strax til raunverulegra aðgerða“

RSÍ skorar á stjórnvöld að bregðast við.
RSÍ skorar á stjórnvöld að bregðast við. mbl.is/Sigurður Bogi

Rafiðnaðarsamband Íslands krefst þess að ríkisstjórnin axli ábyrgð og bregðist við bráðum efnahagsvanda í samfélaginu.

Vill sambandið að ríkisstjórnin hlúi strax að þeim hópum sem höllustum fæti standa og nýti tilfærslukerfin til þess að styðja við ungt fólk, fólk á leigumarkaði, fólk sem nýverið hefur fjárfest í fasteignum og er skuldsett. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á 20. þingi RSÍ.

Í ályktuninni segir að núverandi ástand bitni á öllu launafólki og skerði lífsgæði þess verulega. Greiðsluvandi almennra heimila hafi raungerst.

„Orðið til þess að auka verðbólguna“

„Ljóst er að grípa þarf strax til raunverulegra aðgerða til að vinna gegn verðbólgu, í stað þeirra aðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til og hafa nánast eingöngu orðið til þess að auka verðbólguna. Gríðarleg hækkun vaxta lendir af fullum þunga á heimilum landsins á meðan fjármagnseigendur maka krókinn þar sem núverandi aðgerðir ríkisstjórnar og Seðlabanka Íslands hafa verið þeim í hag,“ segir í ályktuninni.

Þá kemur fram að það sé með öllu ólíðandi að stjórnvöld sitji aðgerðalaus hjá á meðan heimili landsins, launafólk, aldraðir og öryrkjar líði, vegna áhrifa verðlags- og gjaldhækkana, hárrar verðbólgu og sífellt hækkandi vaxta.

Við núverandi aðstæður þarf að sækja auknar tekjur í ríkissjóð til þeirra hópa sem hafa burði til, eins og í formi hækkunar fjármagnstekjuskatts, auðlindagjalda og bankaskatts. Aðgerðaleysi mun óhjákvæmilega leiða til aukinnar ólgu og átaka á vinnumarkaði.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert