Tunnuskipti í tengslum við nýtt flokkunarkerfi á sorpi hefjast 22. maí í Kópavogi. Byrjað verður á tveimur stöðum í bænum, Hjöllum og Álfaheiði annars vegar og Hvörfum og Þingum hins vegar.
Í Kópavogi verður bláa tunnan að pappatunnu og gráa tunnan að plasttunnu. Tunnurnar verða merktar á ný þegar tunnuskipti hefjast. Þá verður bætt við tvískiptri tunnu fyrir lífrænan úrgang og almennan úrgang.
Þegar tunnum verður dreift fá íbúar litla körfu til að hafa inni fyrir lífrænan úrgang og pappírspoka til að setja í körfuna. Pappírspokarnir fara í tvískiptu tunnuna.
Kópavogsbær áætlar að tunnuskiptin á hverju svæði í bænum taki viku en nálgast má upplýsingar um dreifingaráætlun á vef Kópavogsbæjar.