Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sækir í dag leiðtogafund hins pólitíska bandalags Evrópuríkja (e. European Political Community, EPC) sem fram fer skammt frá Chisinau, höfuðborg Moldóvu.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, er á meðal þjóðarleiðtoga sem sækja fundinn en Maia Sandu, forseti Moldóva, tók á móti Selenskí í Mimi-kastala í Bulboaca í morgun.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að alls eigi 47 ríki Evrópu aðild að EPC en vettvangurinn var stofnaður á síðasta ári.
„Markmið bandalagsins er að ýta undir pólitískt samtal Evrópuríkja, óháð því hvar þau eru staðsett í stofnanakerfi Evrópu með tilliti til aðildar að ESB og NATO.“
Um er að ræða annan leiðtogafundinn sem er haldinn á vettvangi EPC. Sá fyrsti var haldinn í Prag í október.