Engin aska hefur mælst í eldgosinu á Reykjanesskaga og það hefur því engin áhrif á flugumferð að svo stöddu, samkvæmt upplýsingum frá Isavia.
„Menn eru að hittast og fara betur yfir þetta. Næstu skref eru að fara yfir viðbragðsáætlunina. Núna eru menn bara að koma í hús,“ segir upplýsingafulltrúi Isavia.