Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja hugmyndir um lagningu nýs alþjóðaflugvallar í Hvassahrauni óraunhæfar í ljósi þeirrar eldgosahættu og jarðhræringa sem eru viðvarandi á svæðinu. Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær.
Segir í bókuninni að jarðfræðingar hafi bent á að gosvirknin virðist vera færast í norðaustur frá Fagradalsfjalli og því nær höfuðborgarsvæðinu. Þá er greint frá því að sú þróun sýni að hugmyndir um lagningu nýs alþjóðaflugvallar í Hvassahrauni séu óraunhæfar vegna jarðhræringa og eldgosahættu líkt og jarðvísindamenn og atvinnuflugmenn hafa bent á árum saman.
Segir einnig í bókuninni að Reykjavíkurflugvöllur muni áfram gegna mikilvægu hlutverki í innanlandsflugi, sjúkraflugi og björgunarflugi og því brýnt að ekki verði þrengt frekar að vellinum, eins og standi til að gera með nýrri byggð í Skerjafirði. „Sjúkraflugið hefur aukist mikið á síðustu árum og er nú almennt viðurkennt sem mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þá gegnir Reykjavíkurflugvöllur mikilvægu hlutverki í millilandaflugi sem varaflugvöllur Keflavíkurflugvallar,“ segir í bókuninni.