Neytendastofa hefur ákveðið að nikótínpúðaversluninni Svens ehf. sé ekki heimilt að hafa myndir af „stórum dósum“ framan á verslunarhúsnæði sínu því það brjóti gegn auglýsingabanni nikótínvara vegna auglýsinga á nikótínvörum.
Þá má Svens hf. ekki vísa til „snus“ í markaðsefni sínu þar sem um sé að ræða beina tilvísun í nikótínpúða.
Í ákvörðuninni er annars vegar fjallað um auglýsingar framan á verslunum Svens og hins vegar auglýsingar sem voru birtar á samfélagsmiðlum.
Þrátt fyrir að dósir framan á verslun fyrirtækisins séu merktar sem „nikótínlausar“ sé letrið svo smátt að vegfarendur sjá það varla en sjá hins vegar greinilega nafn framleiðanda vörunnar sem býður breitt úrval af púðum með nikótíni í sambærilegum umbúðum. Þá taldi stofnunin að tilvísun félagsins til „snus“ í markaðsefni sínu fæli jafnframt í sér beina tilvísun til nikótínpúða.
Í tilkynningu á vef Neytendastofu segir:
„Á samfélagsmiðlum var annars vegar um að ræða auglýsingu þar sem Sven, fígúra félagsins, dansar um með það sem virðist vera nikótínpúði í vörinni og dós utan af slíkum púðum í annarri hendinni, með yfirskriftinni „með 10.000 kodda í vasanum“, og hins vegar auglýsingu þar sem fram kom: „Meira en 150 tegundir og 11 búðir“. Taldi stofnunin að hafa þyrfti hliðsjón af vöruúrvali félagsins sem samanstendur að nær öllu leyti af nikótínpúðum. Með hliðsjón af því mega neytendur réttilega ganga út frá því að framangreindar auglýsingar feli í sér beina tilvísun til vöruúrvals félagsins, þ.e. nikótínpúða.“
Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér.