Ökumaður var handtekinn í dag eftir að hafa ekið bíl sínum á girðingu á Reykjavíkurflugvelli. Maðurinn reyndist óslasaður.
Viðkomandi keyrði í gegnum girðingu flugvallarins og endaði bíllinn í mýrinni, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.