Þegar lagt er mat á áhættuna á hryðjuverkum hér á landi stafar mest ógn af jaðarsettum einstaklingum með öfgafullar skoðanir. Þetta er mat greiningardeildar Ríkislögreglustjóra. Áhættuvísar sem eru til staðar í nágrannalöndunum hafa ekki náð hingað til lands.
Runólfur Þórhallsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild Ríkislögreglustjóra var gestur Dagmála í vikunni. Hann segir kóranbrennur og þátttöku Norðurlandaþjóðanna í hernaðaraðgerðum úti í heimi vera dæmi um áhættuvísa sem auki hættuna á hryðjuverkum þar. Þessir vísar hafi ekki verið til staðar hérlendis.
Hinsvegar séu aðgerðir í ætt við voðverk Anders Breiviks í Ósló og Útey í Noregi 22. júlí 2011 þegar hann myrti tugi ungmenna það sem lögreglan hafi mestar áhyggjur af.
Dagmál í heild sinni eru aðgengileg fyrir áskrifendur Morgunblaðsins sem hlaðvarp og í mynd.
Í myndskeiðinu hér að neðan er Runólfur spurður út í nýlegt mál sem enn er til meðferðar hjá dómstólum þar sem lögreglan handtók tvo menn grunaða um að skipuleggja hryðjuverk í umfangsmiklum aðgerðum.