Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, lætur það ekki á sig fá þó sorphirðumál hafi verið í ólestri í borginni.
Nýtt flokkunarkerfi var tekið upp í sumar og tunnum bætt. Þá hafa tafir orðið á að sorphirðu víða í bænum.
Borgarstjórinn fyrrverandi birti myndband af sér í dag þar sem hann einfaldlega vippar sér ofan í sorptunnurnar við heimili sitt og þjappar ruslið niður.