Þau eru af mismunandi toga málin sem lögreglan þarf að sinna í störfum sínum víðs vegar um landið.
Í dagbók lögreglunnar á stöð 4, sem sinnir Grafarvogi, Grafarholti og Mosfellsbæ, kemur fram að um hádegisbilið í dag hafi kindur verið til vandræða á þjóðveginum í umdæminu.
Þær hafi þó haldið á brott án þess að til smölunar hafi komið.