Verða ekki fyrir tekjutapi

Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Terra umhverfisþjónustu.
Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Terra umhverfisþjónustu. Ljósmynd/Aðsend

Terra umhverfisþjónusta styður heilshugar við baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi og kerfisbundnu launamisrétti, sem er yfirskrift fyrirhugaðs kvennaverkfalls.

Til að sýna stuðning sinn í verki hvetur fyrirtækið konur sem starfa þar til að taka þátt í kvennaverkfallinu og leggja niður störf á morgun, á kvennafrídaginn. Þær verða ekki fyrir tekjutapi, að því er segir í tilkynningu.

„Við hjá Terra umhverfisþjónustu leggjum áherslu á að starfsfólk okkar njóti jafnréttis og erum m.a. ávallt að leita leiða til að jafna hlutföll kynja í fyrirtækinu. Í dag eru konur um 15% af okkar starfsfólki. Á síðasta ári fjölgaði konum úr 10% í 15% og konur sem millistjórnendur fjölgaði úr 23% í 40% hjá fyrirtækinu. Við viljum öll vera metin að verðleikum, óháð kyni og hafa jöfn tækifæri. Við leggjum áherslu á jafnréttis- og jafnlaunastefnu í okkar starfsemi og verið jafnlaunavottuð frá árinu 2020. Við viljum hvetja aðra til að sýna stuðning sinn í verki við konur og kvár á kvennafrídaginn“, segir Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar, í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert