Afreinin verður áfram en stöðvunarskyldu komið á

Skortur á frágangi við afreinina hefur sætt harðri gagnrýni
Skortur á frágangi við afreinina hefur sætt harðri gagnrýni mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki stendur til að leggja niður afrein sem liggur frá Reykjanesbraut að Álfabakka. Þetta kemur fram í svörum skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar við fyrirspurnum Morgunblaðsins.

Borgin hafði til skoðunar að leggja niður afreinina en samgöngudeild Reykjavíkurborgar þótti það óráðlegt og varð ekkert úr þeim áformum.

Stöðvunarskylda og trén stytt

Þar sem afreinin mætir Álfabakka var komið á biðskyldu eftir að götunni var breytt úr einstefnugötu yfir í tvístefnugötu. Nú hefur verið ákveðið að sett verði þar stöðvunarskylda í staðinn. Enn fremur verður trjárunninn snyrtur og tré lækkuð við afreinina til að bæta sjónlínur bílstjóra sem þar aka.

Í svari frá borginni segir að svæðið sé enn vinnusvæði og sé merkt sem slíkt. Til stendur að það verði málað og merkt með skiltum. Morgunblaðið er fullvissað um að keppst sé við að ljúka við verkið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert