Fann glerbrot í súpunni sinni

Um er að ræða vörur sem eru með best fyrir …
Um er að ræða vörur sem eru með best fyrir dagsetningu 14. mars 2024. Samsett mynd/Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur

Sælkerabúðin í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur innkallað villisveppasúpu í eins lítra glerkrukkum.

Ástæðan fyrir innkölluninni er að neytandi fann glerbrot í súpu sinni. Um er að ræða vörur sem eru með best fyrir dagsetningu 14. mars 2024.

„Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila henni í Sælkerabúðina við Bitruháls 2 gegn endurgreiðslu eða farga,“ segir í tilkynningu heilbrigðiseftirlitsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert