Samhliða því að tilkynna um framboð sitt til forseta hefur Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum.
Þá hefur hann jafnframt sagt upp sæti sínu sem varaþingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi.
Þetta tilkynnti Arnar Þór þegar hann tók við fyrirspurnum fjölmiðlamanna eftir að hann tilkynnti um framboð sitt í morgun.