Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur (BÍ) segir að ummæli Hjálmars Jónssonar, sem var sagt upp sem framkvæmdastjóra félagsins í vikunni, „opinberi“ trúnaðarbrestinn á milli hans og stjórnar.
Stjórn BÍ hefur svarað ummælum hans með yfirlýsingu sem félagsmönnum barst með tölvupósti í dag.
Eins og fram hefur komið var Hjálmari sagt upp eftir ágreining við formann félagsins, Sigríði Dögg Auðunsdóttur. Hjálmar hefur sagt að það liggi fyrir í samtölum sínum við formann félagsins að hann hafi gerst sekur um að skjóta tekjum undan skatti í þrjú ár.
Eins og Hjálmar hefur sagt sauð endanlega upp úr á milli hans og formannsins þegar hann hafi neitað formanninum um skoðunaraðgang að reikningum félagsins.
Stjórn BÍ bendir á að ákvörðun um starfslok Hjálmars hafi verið samþykkt einróma í stjórn félagsins og að hún hafi komið til vegna trúnaðarbrests milli hans og stjórnar sem hefur verið viðvarandi um nokkurra mánaða skeið.
Í yfirlýsingunni segir að yfirlýsingar Hjálmars á opinberum vettvangi undanfarna daga opinberi þann trúnaðarbrest – að hann hafi ekki viljað vinna með stjórn félagsins eða í samræmi við ákvarðanir stjórnar.
„Stjórn hafði samþykkt að formaður skyldi fá skoðunaraðgang að reikningum félagsins, en framkvæmdastjóri neitaði að framfylgja þeirri ákvörðun,“ skrifar stjórn BÍ.
„Auk þess hefur framkvæmdastjóri ekki unnið fjölmörg þeirra verkefna sem stjórn hefur falið honum, ásamt því að hann hefur neitað að mæta á fund með formanni og varaformanni. Var stjórnin einróma um það í framhaldinu að óhjákvæmilegt væri að binda enda á ráðningarsamband hans og félagsins,“ skrifar stjórnin.
Stjórn telur það fullkomlega eðlilegt að formaður, og eftir atvikum fleiri stjórnarmenn, hafi skoðunaraðgang að reikningum félagsins, þar sem í því „felst nauðsynlegt aðhald enda segir í lögum félagsins að stjórn hafi yfirumsjón með starfsemi félagsins og beri á henni fulla ábyrgð.“
„Framkvæmdastjóri starfar svo í umboði stjórnar og samkvæmt þeim fyrirmælum og stefnu sem stjórn ákveður. Svo stjórn geti sinnt hlutverki sínu og fylgst með því að rekstur sé í réttu horfi þarf hún að hafa aðgang að bókhaldi og bankayfirlitum. Stjórnarmenn eru að sjálfsögðu bundnir sama trúnaði og framkvæmdastjóri um persónugreinanlegar upplýsingar sem kann að vera að finna í bókhaldi eða bankagögnum félagsins,“ segir í yfirlýsingunni.
„Ákvörðunin um að segja Hjálmari upp var engum stjórnarmanni léttvæg, var vel ígrunduð af hálfu stjórnar og hefur átt sér langan aðdraganda,“ segir í yfirlýsingunni.
Stuttu eftir að Hjálmar komst á eftirlaunaaldur í apríl hafi stjórn ákveðið að auglýsa starf nýs framkvæmdastjóra sem tæki við verkefnum Hjálmars þegar hann léti af störfum sökum aldurs. Í því hafi falist að starfið myndi breytast og að nýr framkvæmdastjóri sinnti nýjum verkefnum sem stjórn hefði ákveðið að ráðast í í samræmi við breyttar áherslur í starfi félagsins.
„Samhliða því fór fram samtal við Hjálmar um nýtt starf, sem stjórnin vildi bjóða honum, þar sem hann myndi áfram sinna verkefnum í þágu félagsmanna á sömu kjörum og hann hefur notið. Sú vinna, sem var unnin með fullri vitund Hjálmars, var með aðkomu ráðningarskrifstofu. Í tengslum við það ferli afhjúpaðist sá trúnaðarbrestur sem að ofan greinir með fyrrgreindum afleiðingum.“
Þá segir að á sama stjórnarfundi hafi verið ákveðið að aðalfundi félagsins yrði flýtt svo sem verða má. Vonast er til að hægt verði að halda aðalfund í byrjun mars en samkvæmt lögum félagsins skal það gert með minnst mánaðar fyrirvara.
Þar verði kosið um helming stjórnar til tveggja ára, líkt og lög félagsins gera ráð fyrir. Þá lýkur einnig kjörtímabili formanns og því kosið um formann til næstu tveggja ára.
Stjórnin segist hafa samþykkt á fundi sínum í morgun að setja starfsreglur fyrir skrifstofu félagsins og hefja samhliða vinnu við „nánari stefnumótun í samvinnu við félagsmenn,“ segir í yfirlýsingunni.
Ákveðið hafi verið að halda félagsfund fyrir lok mánaðarins þar sem stefna félagsins til framtíðar yrði rædd.