Verðandi foreldrar unnu 90 milljónir króna

Verðandi foreldrar hrepptu síðasta lottópottinn á liðnu ári. Þau voru ein með allar tölurnar réttar og fengu rúmar 90,2 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut.

Í tilkynningu frá Íslenskri getspá segir að stóri vinningurinn komi sér sannarlega vel.

„Ekki aðeins vegna allra jólareikninganna heldur vegna þess að fólkið, sem er á fertugsaldri, er nýlega búið að selja íbúðina sína og er einmitt að leita að rúmbetra húsnæði fyrir stækkandi fjölskyldu,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir þeim að þau hafi haft lúmska tilfinningu um að þetta væri þeirra dagur. Þau hafi tekið upp símana sína og keyptu bæði miða í Lottó-appinu.

Sjö raðir á vinningsmiðanum

„Hann var með vinningsmiðann sem innihélt sjö raðir og valdi hann tölurnar sjálfur. Kostaði miðinn 1.050 krónur. Þegar þau fréttu að vinningurinn hefði komið á miða sem var keyptur í appinu urðu þau bæði furðulega viss um að einmitt þau hefðu unnið, en greindi þó aðeins á um hversu mikil geðshræringin var í raun þegar góðu fréttirnar voru staðfestar,“ segir í tilkynningunni.

„Eins og áður sagði kemur stóri vinningurinn sér einstaklega vel en Íslensk getspá hefur einnig boðið vinningshöfunum ókeypis fjármálaráðgjöf.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert