Hraunið frá gossprungunni við Hagafell hefur runnið yfir varnargarðinn norðan við Grindavíkurbæ þar sem hann þverar Grindavíkurveg.
Þetta sést á vefmyndavélum mbl.is en Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta einnig í samtali við mbl.is.