Fær 430 þúsund krónur í sinn hlut

Enginn var með allar tölur réttar.
Enginn var með allar tölur réttar. mbl.is/Mynd úr safni

Einn heppinn miðahafi í Lottóúrdrætti kvöldsins var með bónusvinninginn og fær hann rétt tæpar 430.000 krónur í sinn hlut. Miðinn var keyptur á vefnum lotto.is.

Enginn var með fyrsta vinning og verður potturinn því tvöfaldur næstkomandi laugardag.

Enginn var heldur með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tíu miðahafar voru með annan vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur.

Miðarnir voru keyptir í N1 á Ártúnshöfða, Fjarðarkaupum, Dzien Dobry í Lóuhólum, þrír í lottó appinu, tveir á vefnum lotto.is og tveir miðanna eru í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka