Norðmaður hreppti rúmar 17 milljónir

Heppinn Norðmaður hlaut 2. vinning Víkingalottós.
Heppinn Norðmaður hlaut 2. vinning Víkingalottós.

Heppinn Norðmaður hreppti 2. vinning í útdrætti Víkingalottós fyrr í kvöld og hlýtur því 17.822.560 krónur.

Enginn hlaut fyrsta vinning í útdrætti Víkingalottós í kvöld, en hann nam 443.280.000 kr. 

Einn hlaut þriðja vinninginn, en hann var með miða í áskrift og fær 1.738.880 kr. 

Fjórir hlutu annan vinning í jókernum sem nemur 100.000 kr. og voru miðarnir keyptir í Fjarðarkaupum í Hafnafirði, Extra í Keflavík, Lottó-appinu og í áskrift. 

Þá hlaut enginn fyrsta vinning jókersins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert