Íbúar geta hlaðið bíla sína frítt

Íbúar geta hlaðið bíla sína frítt.
Íbúar geta hlaðið bíla sína frítt. Ljósmynd/Aðsend

N1 hefur opnað fyrir hraðhleðslu í Reykjanesbæ og geta íbúar nú hlaðið bíla sína þar frítt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá N1. Notendur þurfa ekki að auðkenna sig við hleðslustæðin, heldur er nóg að stinga bílunum í samband og hlaða. Um er að ræða sex hraðhleðslustæði í Reykjanesbæ.

„Við viljum koma til móts við ábendingu almannavarna um að fólk fari sparlega með rafmagn í íbúabyggð og hlaði rafbíla frekar í hraðhleðslum á svæðinu,“ er haft eftir Ými Erni Finnbogasyni, framkvæmdastjóra N1.

„Þannig er dregið úr álagi á kerfinu sem er mjög mikilvægt við þær aðstæður sem eru uppi og eru nógu krefjandi fyrir fjölskyldur á svæðinu. Til að einfalda þetta enn frekar fyrir notendur ákváðum við að það væri þeim að kostnaðarlausu að hlaða bílinn, svo ekki færi á milli mála að þetta væri aðgengilegt öllum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert