Báðir stungumennirnir í hnífaárás sem gerð var í Fossvogi fyrir tveimur dögum voru palestínskir karlmenn með alþjóðlega vernd á Íslandi.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Árásin átti sér stað um hádegisbil á fimmtudag og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru báðir menn með hníf og náðu þeir báðir að leggja hvor til annars. Báðir voru fluttir á slysadeild en áverkar, sem eru m.a. í andliti, eru sagðir minniháttar.
Hjördís segir að báðir Palestínumennirnir hafi komið til landsins sem hælisleitendur og fengið alþjóðlega vernd veitta á síðasta ári.
Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, vakti athygli á því í færslu á facebook að annar mannanna hefði þegar verið vísað úr landi en komið aftur þrátt fyrir endurkomubann.
„Tæpu ári eftir komuna til landsins, í október 2022, komust yfirvöld að þeirri niðurstöðu að til að framfylgja brottvísun þyrftu lögreglumenn að fylgja manninum úr landi – til Grikklands. Í kjölfar mats á þeirri hættu sem stafaði af manninum var ákveðið að þrír lögreglumenn skyldu fylgja honum, en ekki tveir eins og vaninn er. Einnig var óskað eftir því að tekin yrði frá aftasta röðin í flugvélinni – og næsta röð fyrir framan hana ef hægt væri.“