Tveir skipta með sér rúmum tveimur milljörðum

Tveir skipta með sér fyrsta vinning.
Tveir skipta með sér fyrsta vinning.

Tveir heppnir miðaeigendur skiptu með sér fyrsta vinningi í úrdrætti Eurojackpot í kvöld og skipta þeir með sér rúmum tveimur milljörðum. 

Miðarnir voru keyptir í Svíþjóð og Þýskalandi.

Fjórir miðaeigendur skiptu með sér öðrum vinningi og fær hver þeirra rúmar 17 milljónir í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Eistlandi, Noregi og Finnlandi. 

Þá fengu ellefu heppnir miðaeigendur þriðja vinning og skipta þeir með sér rúmlega 14 milljónum. Átta miðanna voru keyptir í Þýskalandi en aðrir í Svíþjóð, Noregi og Hollandi. 

Tveir heppnir Íslendingar hrepptu annan vinninginn í jóker kvöldsins og fá 100 þúsund krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir á N1 við Bíldshöfða í Reykjavík og á lottó.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka