Kostnaður ríkisins af réttargæslu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd nam tæpum 1,6 milljörðum króna á ríflega fjögurra ára tímabili, frá árinu 2018 og fram til loka apríl 2022.
Það var Rauði krossinn sem annaðist þessa þjónustu og á grundvelli samnings á milli hans, dómsmálaráðuneytisins og Útlendingastofnunar, að undangengnu útboði. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Birgis Þórarinssonar alþingismanns.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.