Gefur ekkert upp um leyfi til hvalveiða

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég gef það ekki upp í fjölmiðlum hvað ég hyggst gera fyrr en ég er búin að taka ákvörðun og ég er ekki komin með allt það í hendurnar sem ég þarf til þess að geta tekið hana,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra í samtali við Morgunblaðið, spurð um stöðu mála hvað varðar afgreiðslu umsóknar Hvals hf. um endurnýjun leyfis til hvalveiða.

Leyfisumsókn Hvals var send ráðuneytinu 30. janúar sl. og brást ráðuneytið ekki við fyrr en um miðjan mars, þar sem óskað var svara frá fyrirtækinu við spurningum um ýmislegt það sem það taldi varða málið. Hvalur svaraði þeim 21. mars og síðan hefur ekkert til erindisins spurst.

Bjarkey segir að málið sé í faglegu ferli í ráðuneytinu og ekkert í lögum um hvalveiðar mæli fyrir um tímafrest. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert