Baldur Þórhallsson forsetafambjóðandi og stjórnmálaprófessor situr fyrir svörum í næsta þætti af Spursmálum undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar.
Þátturinn verður sýndur í beinu streymi hér á mbl.is á föstudag klukkan 14.
Þegar Baldur opinberaði ákvörðun sína um að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands sagðist honum vera umhugað um mannréttindi og frið, sem sótt hefði verið að um þó nokkurt skeið.
Sagði hann forseta Íslands eiga að vera sameiningartákn og vernd samfélagsins, hérlendis og erlendis.
„Við getum ekki lengur setið hjá og látið hvatningarorð sem vind um eyru þjóta. Við ætlum að svara kallinu hátt og skýrt og taka slaginn,” sagði Baldur í ávarpi sínu.
„Ef við náum árangri hér heima þá getum við líka náð árangri erlendis,” sagði Baldur og taldi mikilvægt að þjóðarhöfðingjar smáþjóða bæru hag sinnar þjóðar fyrir brjósti í hvívetna.
Síðustu daga og vikur hefur Baldur verið á ferð um landið ásamt eiginmanni sínum, Felix Bergssyni, til að kynna framboð sitt fyrir fólki á landsbyggðinni. Niðurstöður nýjustu skoðanakannana sýna að fylgi Baldurs mælist vel.
Í spilaranum hér að neðan má heyra og sjá þátt Spursmála í síðustu viku þegar Katrín Jakobsdóttir sat fyrir svörum. Þátturinn er öllum aðgengilegur hér á mbl.is, Spotify og Youtube.