Gengur klaustrið í endurnýjun lífdaga?

Klaustrið í Garðabæ.
Klaustrið í Garðabæ. Ljósmynd/Garðabær

Garðabær óskar eftir upplýsingum frá hæfum aðilum sem hafa áhuga á að taka þátt í samstarfsverkefni um kaup eða leigu, endurbætur, viðhald og rekstur á húsnæði Garðabæjar við Holtsbúð 87 í Garðabæ. 

Þetta kemur fram á vef Garðabæjar en húsnæðið er betur þekkt undir heitinu Klaustrið og var áður í eigu Sankti Jósefssystra.

Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð, sem gildir til ársins 2028, um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða annarrar sambærilegrar starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga. Húsnæðið hefur verið í takmarkaðri notkun undanfarið og þarfnast samkvæmt fyrirliggjandi ástandsmati töluverðs viðhalds og endurnýjunar.

Yfirvöld i Garðabæ leita annars vegar eftir aðilum sem væru tilbúnir að kaupa eða leigja húsnæðið að hluta eða í heild til að reka þar starfsemi sem rúmast innan ramma þeirra kvaða sem á því hvíla og hins vegar að sjá um viðhald og endurbætur húsnæðisins með tilliti til þeirrar starfsemi.

Verði gætt nýju lífi með öflugri starfsemi

„Garðabær hefur mikinn áhuga á að húsnæðið gangi í endurnýjun lífdaga hvað varðar endurbætur og gott viðhald og að það sé gætt nýju lífi með öflugri starfsemi sem tekur tillit til umhverfisins og íbúa í nágrenninu,“ segir ennfremur á vef Garðabæjar.

Fram kemur að eingöngu sé um að ræða markaðskönnun til að afla upplýsinga um hugmyndir áhugasamra aðila á markaði um nýtingu húsnæðisins og hvernig þær falla að þörfum Garðabæjar. Ekki er tryggt að markaðskönnunin leiði til útboðs og að taka eða taka ekki þátt í henni sé ekki forsenda fyrir þátttöku í hugsanlegu síðara innkaupaferli/útboði.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert