Nokkur erill var hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag en fyrr í kvöld barst tilkynning um vonda lykt úr niðurföllum í Laugardalnum.
Við nánari skoðun kom í ljós að verktakar sem voru við vinnu í hverfinu hefðu hellt einhvers konar málningarhreinsi niður í holræsi.
Þegar slökkviliðið kom á svæðið voru íbúar nú þegar byrjaðir að sprauta vatni niður holræsið til að losna við lyktina.
„Við fórum bara og fundum hvaðan lyktin kom. Síðan fær sá sem réði verktakann í vinnu það verkefni að ræða við hann,“ segir Bjarni Ingimarsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við mbl.is.
Lyktin úr niðurföllunum fór eftir að efnið var skolað niður með vatni.