Í dag verður fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum. Sunnan 3 til 8 metrar á sekúndu verða og dálítil væta vestanlands seint í kvöld.
Á morgun verður suðlæg átt, 3-10 m/s og hvassast við fjöll vestanlands. Dálítil rigning verður með köflum, en yfirleitt léttskýjað norðaustanlands.
Hiti verður á bilinu 4 til 12 stig yfir daginn.